Sjómannamessa í Bíósal Duus á sjómannadaginn

Sjómannamessa verður haldin á vegum Njarðvíkursóknar á sjómannadaginn 7. júní kl. 11:00 í Bíósal Duus safnahúsa.

Félagar úr Kór Njarðvíkurkirkju leiða söng við undirleik Rafns Hlíðkvist organista. Sr. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir þjónar.
Að lokinni messu verður gengið að minnismerki sjómanna við Hafnargötu og þar lagður blómakrans frá Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis og Félagi skipstjórnarmanna.

Kaffi og nýsteiktar kleinur í boði Duus safnahúsa og Njarðvíkurkirkju.

Allir sjómenn og fjölskyldur þeirra eru boðin sérstaklega velkomin og hvetjum við félagsmenn til að fjölmenna í messuna.