1.maí 2026 – Hátíðardagskrá í Stapa

Um leið og stéttarfélögin í Reykjanesbæ senda félagsfólki og öðrum íbúum svæðisins óskir um gleðilegan baráttudag verkalýðsins bjóða þau á baráttufund í Stapa, Hljómahöll, 1. maí Kl. 14.00.

Öll velkomin meðan húsrúm leyfir

Húsið opnar kl. 13:45

🎺 Blásturssveit tónlistarskóla Reykjanesbæjar tekur á móti gestum

🎹 Guðmundur Hermannsson leikur létta tóna fyrir dagskrá og á milli atriða

Dagskrá

14:00 – Opnun og kynning. Kynnir Guðbjörg Krismundsdóttir, formaður VSFK.

14:10 – Hátíðarræða. Kristján Gunnarsson, formaður félags eldri borgara á Suðurnesjum.

14:30 – Ungleikhúsið / PPU.

14:50 – Kósýbandið tekur nokkur lög.

15:40 – Leikfélag Keflavíkur með atriði úr söngleiknum We Will Rock You.

16:00 – Kór Ytri Njarðvíkurkirkju lokar dagskrá með söng.