24. október 2025 – Nútíma kvennabarátta
Á kvennafrídaginn, 24. október 2025, frá 10:00 – 14:00 ætlar Alþýðusambandið að halda málþing um konur af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði, en viðburðurinn er haldinn í tilefni Kvennaárs 2025. Málþingið verður haldið í Kaldalóni í Hörpu.
Túlkaþjónusta frá íslensku yfir á ensku verður í boði. Ath! English interpretation available
Vinnuheiti málþings er Nútíma kvennabarátta – Konur af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði.
Í tilefni kvennaárs hefur Alþýðusambandið ákveðið að varpa sérstöku ljósi á hinar fjölmörgu áskoranir sem mæta konum af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði og í samfélaginu. Þær festast gjarnan í láglaunastörfum, eiga erfitt með að fá hæfni og menntun sína viðurkennda og eiga síður bakland hér í landi. Í ræðu Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur, verkakonu og verkalýðsforingja, 24. október 1975, sagði hún kvennabaráttuna snúa að þeim sem hafi lægstu kjörin, minnsta baklandið og versta aðbúnaðinn. Með það í huga ætlum við nú að beina sjónum okkar að verkakonum nútímans, sem svo margar koma úr röðum innflytjenda og sinna mikilvægustu störfunum í samfélaginu.
DAGSKRÁ
10:00 – Ráðstefnustýra opnar málþing. Vanessa Isenmann, verkefnastjóri hjá Mími
10:05 – Opnunarræða. Finnbjörn A. Hermannson, forseti ASÍ
Þema 1 – Láglaunakonur og vanmat kvennastarfa
10:20 – Bozena Raczkowska, deildarstjóri á leikskóla
10:30 – Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar
10:45 – Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, jafnréttisfulltrúi ASÍ, stjórnar pallborði
Pallborð: Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra, Anna Júlíusdóttir, formaður Einingar-Iðju, Bozena Raczkowska og Gundega Jaunlinina, varaformaður Hlífar
Þema 2 – Viðurkenning á hæfni og menntun – aðgengi að íslenskukennslu
11:15 – Agnes Olejarz, starfsmaður kjaramálasviðs hjá Fagfélögunum
11:25 – Jakob Tryggvason, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands (RSÍ)
11:35 – Haukur Harðarsson, teymisstjóri hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
11:45 – Hulda Anna Arnljótsdóttir, sérfræðingur og fulltrúi mennta- og barnamálaráðuneytis
11:55 – Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, sviðsstjóri fræðslusviðs, stjórnar pallborði
Pallborð: Hulda Anna Arnljótsdóttir, Haukur Harðarsson, Jakob Tryggvason og Agnes Olejarz
12:15 Léttur hádegismatur
12:45 Uppbrot – Vendipunktar: Aðfluttar kvenraddir // Turning Points: Immigrant Women’s Voices
Sarah Woods and Emily Lethbridge (Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum // Árni Magnússon Institute for Icelandic Studies)
Þema 3 – Samfélag – sameiginleg ábyrgð og framtíð
13:00 – Agnieszka Szczodrowska, þjónustufulltrúi Framsýnar
13:10 – Aleksandra Leonardsdóttir, sérfræðingur í fræðslu og inngildingu hjá ASÍ
13:25 – Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, stjórnar pallborði
Pallborð: Hanna Katrín Friðriðsson, atvinnuvegaráðherra, Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Christin Irma Schröder, deildarstjóri hjá PCC, Húsavík
13:55
Samantekt ráðstefnustýru um helstu umræðupunkta sem vert er að byggja á í framhaldinu. Málþingi slitið