Persónuverndarstefna

Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis (VSFK) metur friðhelgi einkalífs og persónuvernd einstaklinga mikilvæg grunnréttindi og styður styrkingu á rétti einstaklinga sem til kom með lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga í kjölfar samþykktrar svokallaðrar GDPR reglugerðar ESB.

VSFK er stéttarfélag sem hefur það hlutverk að sameina verkafólk og sjómenn á félagssvæðinu og vinna að hagsmunum þeirra. 

Vinnsla persónuupplýsinga hjá VSFK er að öllu leyti í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sem og viðkomandi gerðir samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Lögin taka m.a. á vinnslu, vörslu og miðlun persónuupplýsinga.

Persónuupplýsingum  er safnað um félagsmenn til að hægt sé að veita tiltekna þjónustu og upplýsa félagsmenn, og eins til að greiða ýmsa styrki, halda utan um félagsskrá félagsins og tryggja öryggi félagsmanna og eignir félagsins. Þær upplýsingar sem félagið safnar um félagsmenn eru m.a. kennitala, heimilisfang, símanúmer, netfang, samskiptasaga, vinnustaður, bankaupplýsingar, launaseðlar og fleiri gögn tengd ráðningarsambandi félagsmanna sem sækja þjónustu VSFK, iðgjöld, sjúkradagpeningar og styrkir úr sjúkrasjóði VSFK, styrkir úr starfsmenntasjóði, styrkir úr varasjóði, upplýsingar um leigur orlofshúsa, ljósmyndir af illa umgengnum orlofshúsum og myndefni úr öryggismyndavélum í Krossmóa 4a.

Þá safnar VSFK einnig eftirfarandi upplýsingum sem flokkast sem viðkvæmar persónuupplýsingar skv. 3. tölul. 3. gr. laga nr. 90/2018: Þjóðerni, aðild að stéttarfélagi, heilsufarsupplýsingar í tengslum við starfsemi sjóða félagsins og vegna þjónustu við félagsmenn.

Vinnsla VSFK á framangreindum persónuupplýsingum er í þeim tilgangi að uppfylla samnings-, og lagaskyldur félagsins og til þess að vernda brýna hagsmuni félagsmanna og félagsins sjálfs sbr. 9. gr. laga nr. 90/2018, til að hægt sé að m.a. reikna út réttindi hvers félagsmanns, eiga í viðeigandi og nauðsynlegum samskiptum við félagsmenn með símtali, tölvupósti og eða bréfpósti,úthluta orlofseignum, selja gjafabréf, hótelmiða og ferðakort hvers konar, koma í veg fyrir slæma umgengni um orlofseignir félagsins, gefa félagsmönnum kost á því að kjósa til stjórna félagsins og sjóðstjórna og gera félagsmönnum unnt að kjósa um kjarasamninga og verkfallsboðanir eftir atvikum.

VSFK selur ekki persónuupplýsingar um félagsmenn undir neinum kringumstæðum.

VSFK miðlar einungis persónuupplýsingum til þriðja aðila þar sem slíkt er skylt samkvæmt lögum. Feli VSFK þriðja aðila að vinna persónuupplýsingar félagsmanna skal það einvörðungu gert á grundvelli vinnslusamnings þar sem m.a. skal kveðið á um skyldu vinnsluaðila til að tryggja öryggi persónuupplýsinga og að þær séu ekki notaðar í öðrum tilgangi samkvæmt vinnslusamningi á milli aðila.

VSFK deilir og persónuupplýsingum til þriðja aðila þegar slíkt er nauðsynlegt til að vernda brýna hagsmuni félagsmanna svo sem við innheimtu á vanskilakröfum. VSFK hefur gert samning við lögmannsstofu um innheimtu launakrafna fyrir hönd félagsmanna og gilda um þau samskipti lög um persónuvernd. Þá eru lögmenn sem koma fram fyrir hönd félagsins sömuleiðis bundnir trúnaðarskyldu gagnvart félagsmönnum samkvæmt siðareglum lögmanna.

Félagsmenn eru þeir einstaklingar sem greiða til félagsins.

VSFK notar forritið Google Analyctics til að mæla aðsókn á vefsíðu félagsins en þær upplýsingar sem verða til þar eru að engu leyti persónugreinanlegar.

Fyrirspurnum og erindum er varða vinnslu persónuupplýsinga hjá VSFK skal senda á vsfk@vsfk.is