Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir sumarið 2026 inn á Mínum síðum á vsfk.is.
Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út sumarið 2026:
- 3 hús í Svignaskarði
- 1 hús í Húsafelli 64 (hundahald leyft)
- 2 hús í Ölfusborgum
- 4 hús við Syðri Brú (Grímsnesi) (Hundahald leyft í húsi nr.10)
- 1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri
Útleigutímabil er frá föstudeginum 22. maí til og með föstudagsins 21. ágúst 2026.
Félagsmenn fara inn á www.vsfk.is og smella á Mínar síður og skrá sig inn með Rafrænum skilríkjum, fylla skal út Sumarumsókn þar með allt að 4 valmöguleikum.
Umsóknarfrestur er til mánudagsins 6. apríl 2026. Úthlutað 7. apríl.
Úthlutað verður samkvæmt punktakerfi.
Orlofsstjórn VSFK


