Orlofshús VSFK – Páskar 2026

Opnað hefur verið fyrir páskaumsóknir inn á Mínum síðum á vsfk.is (þar er valið orlofssjóður og páskar).

Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út um páskana:

  • 3 hús í Svignaskarði
  • 1 hús í Húsafelli 64 (hundahald leyft)
  • 2 hús í Ölfusborgum
  • 4 hús við Syðri Brú (Grímsnesi) (Hundahald leyft í húsi nr.10)
  • 1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri

Útleigutímabil er frá miðvikudeginum 1.apríl til og með miðvikudagsins 8. apríl 2026.

Félagsmenn fara inn á www.vsfk.is og smella á Mínar síður og skrá sig inn með Rafrænum skilríkjum, fylla skal út páskaumsókn þar með allt að 4 valmöguleikum.

Umsóknarfrestur er til sunnudagsins 8. mars 2026.

Úthlutað verður samkvæmt punktakerfi.

Umsóknir fyrir sumarið 2026 opna 13. mars og verða opnar til 3. apríl.

Orlofsstjórn VSFK