Orlofshús VSFK – Páskar 2023

Opnað hefur fyrir páskaumsóknir inn á orlofssíðu VSFK (Grænn takki merktur Orlofshús)

Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út um páskana:

  • 3 hús í Svignaskarði
  • 1 hús í Húsafelli (hundahald leyft)
  • 2 hús í Ölfusborgum
  • 4 hús við Syðri Brú (Grímsnesi) (hundahald leyft í húsi nr.10)
  • 1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri

Útleigutímabil er frá miðvikudeginum 5.apríl til og með miðvikudagsins 12. apríl 2023.

Félagsmenn fara inn á www.orlof.is/vsfk og skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum, fylla skal út páskaumsókn þar með allt að 4 valmöguleikum.
Einnig er hægt að smella á Orlofsvefur (grænn takki)  

Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 miðvikudagsins 1. mars 2023.
Úthlutað verður samkvæmt punktakerfi.

Umsóknir fyrir sumarið 2023 opna 8. mars og verða opnar til 30.mars.

Orlofsstjórn VSFK

orlofshús VSFK