Opnað hefur verið fyrir páskaumsóknir inn á orlofssíðu VSFK
Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út um páskana:
- 3 hús í Svignaskarði
- 2 hús í Húsafelli
- 2 hús í Ölfusborgum
- 3 hús við Syðri Brú (Grímsnesi)
- 1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri
Útleigutímabil er frá miðvikudeginum 31.mars til og með miðvikudagsins 7. apríl 2021.
Félagsmenn fara inn á www.orlof.is/vsfk og skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum, fylla skal út páskaumsókn þar með allt að 4 valmöguleikum.
Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 mánudagsins 1. mars 2021.
Úthlutað verður samkvæmt punktakerfi.
Umsóknir fyrir sumarið 2021 opna 8. mars 2021.
Orlofsstjórn VSFK
