Opnað hefur fyrir umsóknir fyrir sumarið 2022

Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út Sumarið 2022:

  • 3 hús í Svignaskarði (Veiðileyfi í neðra svæði Norðurá í boði)
  • 1 hús í Húsafelli 64 (hundahald leyft)
  • 2 hús í Ölfusborgum
  • 4 hús við Syðri Brú (Grímsnesi) (Hundahald leyft í húsi nr.10)
  • 1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri


Útleigutímabil er frá föstudeginum 20.maí til og með
föstudagsins 19. ágúst 2022.
Félagsmenn fara inn á www.orlof.is/vsfk og skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum, fylla skal út Sumar Umsókn 2022 þar með allt að 4 valmöguleikum.
Einnig er hægt að fara inn á vsfk.is – Orlofshús (grænn takki)
Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 þriðjudagsins 29. mars  2022.
Úthlutað verður samkvæmt punktakerfi.

Orlofsstjórn VSFK