Opið fyrir umsóknir vegna nýrra leiguíbúða í Trölladal, Reykjanesbæ

Opið er fyrir umsóknir vegna nýrra leiguíbúða. Bjarg íbúðafélag hefur opnað fyrir umsóknir vegna leiguíbúða í Trölladal 1–11, Reykjanesbæ.

Áætlað er að fyrstu íbúðir verði tilbúnar í júlí 2026 og svo næst í október 2026. Sjá frekari upplýsingar um úthlutun og upphaf leigu hér.

Íbúðirnar eru 2ja, 3ja, 4ra og 5 herbergja. Gæludýrahald er heimilt í íbúðum á jarðhæðum, sjá nánar reglur Bjargs um gæludýrahald hér.

Skoða auglýsingu

Umsóknir og nánari upplýsingar á heimasíðu Bjarg íbúðafélags.