Lokun skrifstofu vegna útfarar

Skrifstofa félagsins verður lokuð frá kl. 12:00 þriðjudaginn 14. júlí vegna útfarar Jóhannesar D. Halldórssonar.

Jóhannes var stjórnarmaður í félaginu í fjölda ára og gegndi jafnframt öðrum trúnaðarstörfum.

Stjórn og starfsfólk VSFK senda fjölskyldu Jóhannesar samúðarkveðjur vegna fráfalls hans og þakkar fyrir störf Jóhannesar í þágu félagsins.