Í samræmi við nýja gr. 5.4 í samþykktum Festu lífeyrissjóðs, boðar stjórn lífeyrissjóðsins til fundar í fulltrúaráði sjóðsins miðvikudaginn 27. október n.k. á Grand Hótel, Sigtúni 38, 105 Reykjavík. Fundarstörf hefjast kl.: 18:00. Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum.
Dagskrá:
- Setning fundar
- Kynning á afkomu Festu lífeyrissjóðs m.v. 30.06.2021
- Kynning á framvindu og fylgni við fjárfestingarstefnu sjóðsins
- Önnur mál
Stjórn Festu lífeyrissjóðs