Fundur fulltrúaráðs Festu lífeyrissjóðs

Í samræmi við nýja gr. 5.4 í samþykktum Festu lífeyrissjóðs, boðar stjórn lífeyrissjóðsins til fundar í fulltrúaráði sjóðsins miðvikudaginn 27. október n.k. á Grand Hótel, Sigtúni 38, 105 Reykjavík. Fundarstörf hefjast kl.: 18:00. Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum.

Dagskrá:

  1. Setning fundar
  2. Kynning á afkomu Festu lífeyrissjóðs m.v. 30.06.2021
  3. Kynning á framvindu og fylgni við fjárfestingarstefnu sjóðsins
  4. Önnur mál       

Stjórn Festu lífeyrissjóðs