Ferðaávísanir til sölu!

Félagsmönnum VSFK býðst nú að kaupa ferðaávísun sem er hægt er að nota fyrir gistingu á einhverjum af fjölmörgum samstarfsaðilum okkar og fá þannig góðan afslátt af gistingu. Hægt er að nálgast ferðaávísanirnar á Orlofsvef VSFK.  

Hótel og gististaðir

Þú velur sjálf/ur á hvaða gistiheimili þú notar ávísunina eftir að hún hefur verið keypt. 

Hafir þú áhuga á að kynna þér ferðaávísanir þá ferð þú á Orlofsvef VSFK og þar smellir þú á innskráningu (efst í hægra horni) og notar rafræn skilríki eða íslykil.

Þegar innskráningu er lokið velur þú „FERÐAÁVÍSUN“ og „Kaupa ferðaávísun“. Þar inni getur þú síðan skoðað úrvalið og keypt ferðaávísun með því að smella á þrjú strik efst í vinstra horni.

ATHUGIÐ! Nauðsynlegt er að kanna hvort það séu laus herbergi á réttum tíma og réttum stað og bóka gistingu.

VSFK getur ekki ábyrgst að gistirými sé laust þegar félagsmaður hyggst nota ávísunina. Handhafi ávísunar þarf sjálfur að bóka herbergi og gangast undir bókunarskilmála hvers samstarfsaðila. Komi upp ágreiningur vegna veittrar þjónustu skal beina því erindi til viðkomandi samstarfsaðila. Seljandi ferðaávísunar ábyrgist ekki gæði þjónustu samstarfsaðilanna

Spurt og svarað

Hvers vegna ætti ég að kaupa ferðaávísun?

Vegna þess að hótelkeðjur og gistiheimili hafa boðið félagsmönnum stéttarfélaganna, í krafti fjölda þeirra, betri tilboð en hægt er að fá á almennum markaði.

Hvar sé ég hvaða tilboð eru í boði?

Á vefnum orlof.is geturðu skráð þig inn, eins og þegar þú sækir um orlofshús, og valið „Ferðaávísun“. Þá koma valmöguleikarnir upp. Hvert hótel eða gistiheimili getur verið með mörg tilboð, eftir gerð herbergis eða innifalinni þjónustu.

Hvernig get ég treyst því að það komi ekki fram betri tilboð eftir að ég hef keypt ferðaávísun?

Ef sá gististaður sem þú velur þér lækkar verð í millitíðinni, þá fullnýtir þú ekki ávísunina. Það er ein af lykilforsendum þessa samstarfs, að ávísunin gildi með öllum öðrum tilboðum hótelanna. Með þessu verður fylgst náið.

Hvar kaupi ég ferðaávísunina og hvernig nálgast ég hana?

Þú ferð inn á orlofsvef þíns stéttarfélags og smellir á „Ferðaávísun“. Þegar þú hefur valið þér vöru og greitt fyrir með greiðslukorti, færðu kvittun í tölvupósti. Ávísunin þín verður á þínu svæði á orlofsvefnum og gististaðir geta flett kennitölunni upp, þegar þú mætir á staðinn.

Hvernig nota ég ferðaávísunina?

Þegar þú mætir á áfangastað gefur þú upp kennitölu þína, sem er þá skráð í bókunarkerfi gististaðarins. Þú þarft engu að framvísa öðru en persónuskilríkjum.

Get ég fengið ávísunina endurgreidda?

Já, þú getur fengið ferðaávísunina endurgreidda. Þú færð þá til baka sömu upphæð og þú lagðir út, sé hún ónýtt. Hafi punktar verið teknir af félagsmanni við kaup á ferðaávísun, þá fást þeir líka endurgreiddir.

Ég hef notað hluta ferðaávísunarinnar, get ég fengið restina til baka?

Já, þú getur alltaf fengið þann hluta endurgreiddan sem ekki hefur verið nýttur. Ef ávísunin hefur verið niðurgreidd að hluta verður endurgreiðslan í réttu hlutfalli við útlagðan kostnað þinn.

Rennur ávísunin út?

Nei, hún rennur aldrei út og þú getur sótt um endurgreiðslu hvenær sem er.

Ég hef ekki aðgang að tölvu eða snjallsíma eða er ekki með rafræn skilríki. Hvernig get ég keypt ferðaávísun?

Ekki hika við að hafa samband við skrifstofu félagsins ef þig vantar aðstoð. Við hjálpum þér með ánægju og reynum að leysa málin.