Félagsmannasjóður VSFK

Allir félagsmenn sem störfuðu hjá sveitarfélagi eða eftir kjarasamningi SGS og Sambandi sveitarfélaga á árinu 2022 eiga að fá greitt úr Félagsmannasjóði VSFK í byrjun febrúar nk.

Síðastliðin tvö ár hefur umsýsla sjóðsins verið hjá Starfsgreinasambandinu en í fyrra var gerð breyting á og nú sjá aðildarfélögin sjálf um umsýslu sjóðsins. Vegna útborgunar úr sjóðnum er félagsmönnum því bent á að snúa sér til VSFK.

Þeir sem eru í félaginu og vinna hjá:

  • Reykjanesbæ (Búið að greiða)
  • Suðurnesjabæ (Búið að greiða)
  • Sveitarfélaginu Vogum
  • Þrótti Vogum (Búið að greiða)
  • Hjallastefnunni (Búið að greiða)
  • Sunnugarði (Búið að greiða)
  • Gimli (Búið að greiða)
  • Kalka (Búið að greiða)

Eiga rétt á greiðslunum.

Þeir sem ekki hafa sent reiknisnúmerið sitt til VSFK vinsamlegast gerið það svo greiðslan komist til skila.

Senda má upplýsingar á vsfk@vsfk.is og eins hringja í síma 421-5777 og gefa upp reikninsnúmer.