Opnað hefur fyrir páskaumsóknir inn á orlofssíðu VSFK (Grænn takki merktur Orlofshús)
Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út um páskana:
- 3 hús í Svignaskarði
- 1 hús í Húsafelli (hundahald leyft)
- 2 hús í Ölfusborgum
- 4 hús við Syðri Brú (Grímsnesi) (hundahald leyft í húsi nr.10)
- 1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri
Útleigutímabil er frá miðvikudeginum 13.apríl til og með
miðvikudagsins 20. apríl 2022.
Félagsmenn fara inn á www.orlof.is/vsfk og skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum, fylla skal út páskaumsókn þar með allt að 4 valmöguleikum.
Einnig er hægt að fara inn á vsfk.is – Orlofshús (grænn takki)
Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 þriðjudagsins 1. mars 2022.
Úthlutað verður samkvæmt punktakerfi.
Umsóknir fyrir sumarið 2022 opna 7. mars og verða opnar til 29.mars.
Orlofsstjórn VSFK
