Þann 1. apríl hækka laun félagsmanna VSFK sem vinna hjá sveitarfélögum, ríkinu og hjá hjúkrunarheimilunum (SFV).
Föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu hækka um 3.5% en þó aldrei minna en 23.750 krónur nema launatöflur sem fylgja kjarasamningi tilgreini annað.
Kjaratengdir liðir hækka um 3,5% nema um annað hafi verið samið.
Mikilvægt er að félagsmenn skoði launaseðla sína í lok apríl og hafi samband við yfirmann sinn ef launahækkun hefur ekki skilað sér.
Eins hvetjum við félagsmenn til að hafa samband við skrifstofu félagsins ef einhver vafi leikur á að svo hafi verið.

