Félagsmaður á rétt á sjúkradagpeningum úr sjóðnum ef greitt hefur verið af honum til Sjúkrasjóðs í a.m.k sex mánuði áður en hann verður launalaus vegna alvarlegra, langvarandi veikinda.
Sækja þarf um greiðslur sjúkradagpeninga samhliða greiðslum úr sjúkrasjóði til Sjúkratrygginga Íslands ef veikindin vara í lengri tíma en 2 vikur.
Réttur til sjúkradagpeninga endurnýjast á 12 mánuðum hafi félagsmaður greitt í sjúkrasjóð í þann tíma. Rétturinn endurnýjast hlutfallslega eftir því sem hann er nýttur frá þeim degi sem greiðslur dagpeninga lýkur.
Frá hvaða tíma greiðast dagpeningar?
Réttur stofnast frá og með þeim tíma er samningsbundinni eða lögboðinni kaupgreiðslu frá atvinnurekanda lýkur vegna veikinda og/eða slysa.
Hvenær eru dagpeningar greiddir?
Dagpeningar eru greiddir tímabundið allt að 120 daga til þeirra sem verða launalausir vegna alvarlegra veikinda og eiga ekki rétt á öðrum greiðslum en sjúkradagpeningum Sjúkrasjóðs og dagpeningum frá Tryggingastofnun ríkisins.
Sjúkradagpeningar vegna barna og eða maka
Dagpeningar eru greiddir í allt að 90 daga tímabundið vegna langveikra og alvarlega fatlaðra barna. Með langveikum börnum er átt við börn undir 18 ára aldri sem greinast með alvarlega og langvinna sjúkdóma og þarfnast sérstakrar umönnunar.
Dagpeningar eru greiddir í allt að 90 daga tímabundið vegna mjög alvarlegra veikinda maka.
Réttur til sjúkrabóta og dagpeninga fyrnist sé þeirra ekki vitjað innan 12 mánaða frá því að réttur til greiðslu þeirra skapaðist.
Ath. Ekki eru greiddir sjúkradagpeningar vegna bótaskyldra slysa og atvinnusjúkdóma, þ.m.t. bifreiðaslysa, þar sem bætur greiðast skv. skaðabótalögum.
Umsókn um sjúkradagpeninga
Með umsókn um sjúkradagpeninga skjal fylgja ljósrit af sjúkradagpeningavottorði frá lækni, upprunnið í tölvukerfum heilsugæslunnar og spítalanna.
Fyrsta vottorð þarf að vera íslenskt sjúkradagpeningavottorð. Framhaldsvottorð (vottorð vegna endurnýjunar/framlengingar) mega vera af erlendum toga en þurfa að vera ítarleg og innihalda sambærilegar upplýsingar og sjúkradagpeningavottorð. Ef þau eru á erlendu tungumáli þarf að fylgja þýðing yfir á íslensku eða ensku gerð af löggiltum skjalaþýðanda.
Heimilt er að skila erlendu fyrsta vottorði ef félagsmaður veikist skyndilega í fríi erlendis. Félagsmaður getur þurft að færa sönnur fyrir því að um fyrirfram ákveðið frí erlendis hafi verið að ræða.
Skila þarf umsóknum fyrir 23. hvers mánaðar til að fá greitt næstu mánaðarmót á eftir.
Umsókn um sjúkradagpeninga fara fram í gegnum Mínar síður
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Þóreyju á netfangið thorey@vsfk.is
Með umsókn þarf að fylgja:
- Sjúkradagpeningavottorð
- Starfsvottorð
- Síðasti launaseðill ( starfsmaður óskar mögulega eftir fleiri launaseðlum)
Umsóknir um sjúkradagpeninga og styrki þurfa að hafa borist fyrir 23. dag mánaðar til að greiðast út í lok mánaðar.


