Desemberuppbót

Desemberuppbót er eingreiðsla sem atvinnurekendum ber samkvæmt kjarasamningi að greiða starfsmönnum sínum í desember ár hvert. Fjárhæðin ákvarðast meðal annars af  starfstíma og starfshlutfalli á yfirstandandi ári. Desemberuppbótin er mishá eftir kjarasamningum.

Nánari reglur um desemberuppbót/persónuuppbót má finna í kjarasamningnum.

Upphæð desemberuppbótar / persónuuppbótar 2024

Gerð kjarasamningsUpphæð desemberuppbótar
Almennir samningar106.000 kr.
Kjarasamningar við sveitarfélög135.000 kr.
Kjarasamningur við ríki106.000 kr.
Kjarasamningur vegna starfsfólks á hjúkrunarheimilum (SFV)106.000 kr,

Til að vera viss um að þið séuð að fá rétt greitt er hægt að nýta sér reiknivélar SGS.

Reiknivélar